Monday, February 02, 2009

Góð helgi í Odense..

...að baki og ég setti inn nokkrar myndir frá síðustu vikum hérna til hliðar í myndaalbúmið. Smella á myndina af okkur skötuhjúum til að skoða fleiri myndir. Helgin var yndisleg í alla staði og við nutum okkar eins og við værum í útlöndum. Haddi og Bjarney stjönuðu við okkur alla helgina og við skemmtum okkur afskaplega vel. 

Í gærkvöldi fengum við Einar Rúnar í kvöldmat til okkar þar sem hann var í transiti á leið sinni heim til Kína. Gaman að fá hann í stutta heimsókn og við látum okkur nú dreyma um Kínaferð - sérstaklega í ljósi þess hversu skelfilega kalt er í Kaupmannahöfn þessa dagana. 

2 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir frábæra helgi!
Sjáumst vonandi næstu helgi líka :o)
kveðja úr sveitinni B&H

Lalli og Eva said...

Takk sömuleiðis!! Sjáumst i morgen eða á laugardag.