Tuesday, May 19, 2009

Sveiflur

Og þær tengjast hvorki suðri né sól eins og sumum hefði jafnvel dottið í hug. Hér á bæ eru geðsveiflur mun algengara fyrirbæri "á þessum síðustu og verstu tímum". Heyrði um daginn af fólki sem var alveg komið með ofnæmi fyrir þessu orðatilæki heima á Íslandi. Í mínum huga tengist það hins vegar ekki efnhagsástandi eða kreppu á nokkurn hátt heldur miklu frekar þeirri staðreynd að eftir 7 daga á ég að skila inn tveimur viðamiklum ritgerðum um ansi flókin málefni. Efni þeirra og innihald koma síðan til með að ákvarða um það hvort ég lýk þessari önn með sóma eða bara alls ekki. 

Um svipað leyti og var búin að sitja sveitt við að bæta, laga og stytta þessi blessuðu ritverk mín í um það bil 8 klukkustundir samfleytt (án árangurs) fékk í sendan póst frá Ítalíu þar sem mér var tilkynnt að fresturinn til að skila inn útdrætti og uppkasti af fyrirlestri (sem ég kem til með að halda í ágúst) væri nú óðum að renna út. Ég fékk vægt taugaáfall og tók þá mikilvægu ákvörðun að gefast upp... í kvöld að minnsta kosti. Eða þangað til að geðsveiflurnar snúast í aðra átt, sem þær gera jú alltaf á endanum. 

Annars er allt í sómanum hérna í Vesterbro. Við skötuhjú vinnum og lærum eins og síðustu blogg hafa gefið glöggt til kynna. Fengum yndislega gesti um helgina og áttum góðar stundir með þeim þrátt fyrir að hafa þurft að senda þau nokkru sinnum ein út að spássera, þar sem bækurnar kölluðu. Gestirnir fengu að kynnast Vesterbro nokkuð vel þar sem við Lárus erum orðin ansi heimakær og hliðholl hverfinu okkar. En Vesterbro er nú ekki verra en nokkurt annað hverfi svo ég held að þeim Berglindi og Hilmari hafi ekki líkað það illa að spóka sig mest um hér í vesturhluta Kaupmannahafnar. 

Stærstu fréttir vikunnar eru hins vegar án efa þær að Lárus sér nú heiminn í nýju ljósi þar sem hann dreif sig í sjónmælingu og er hér með hættur að reyna að "æfa" sjónina með því að píra augun. Hann kom heim með linsur í dag og er alsæll með nýju sjónina :) 

Hér verður bloggað að mun meiri krafti og gleði eftir að skóla lýkur!! 

3 comments:

Berglind (og Hilmar) said...

Okkur líkaði það sko skrambi vel:)
Til hamingju með nýju sjónina Lalli! Þá sjáumst við svo miklu betur næst:)

Anonymous said...

Gott að heyra að allt gangi eins og það á að gera á þessum síðustu og verstu :-)
Þú átt eftir að rúlla upp þessum ritgerðum og þessum fyrirlestri, girl! Fáðu þér bara einn góðan Vesterbrogöngutúr og þá kemur þetta.
Er annars að senda fullt af liði til ykkar ... þannig að næstu dagar verða undirlagðir af Hvergerðisku fjöri
Hafið það gott
Guðrún

Lalli og Eva said...

Jebb tøkum a moti theim a Hovedbane i kvøld og svo verdur grillveisla i goda vedrinu. Rosa plan i gangi ;)

Takk sømuleidis.