Monday, April 27, 2009

sól sól skín á mig

Þegar maður þarf að vera inni að læra þá gerist þetta:




Helgin var svo hugguleg, sól og blíða, góðir vinir og dýrmætar stundir! 

Ég vann alla helgina að ritgerð um hvernig borgaravitund og lýðræði birtist í námskrá í grunnskólum í Danmörk og á Íslandi. Ritgerðin er hluti af stærra verkefni sem ég er að fara að kynna á tveggja vikna ráðstefnu í Lignano á Ítalíu í ágúst. Pantaði mér einmitt flugmiða til Feneyja í gærdag. Mikil tilhlökkun og spenningur!

Lalli er á fullu að vinna, bæði hjá Jens (framkvæmdarstjóra SISU), við að þjálfa 94 módel af strákum í körfubolta og sem íþróttakennari hjá CIS. Okkur veitir víst ekki af því að reyna að þéna smá peninga áður en við flytjum suður á bóginn ;) 

Hlökkum mikið til allra heimsóknanna sem eru handan við hornið. Vinir og fjölskylda væntanleg í maí og júní. Enda er stefnan tekin á að klára sem mest fyrri 14. maí til að geta notið þess að taka á móti gestum í rólegheitum... og vonandi í jafn góðu veðri og er búið að vera síðustu daga og spáir næstu vikuna :) 


3 comments:

eyrún said...

Og hvernig birtist borgaravitund og lýðræði í námsskrám í grunnskólum í Danmörku og á Íslandi? Do tell.

Berglind said...

ohh vonandi helst veðrið svona blítt:) Hlakka endalaust til.

Lalli og Eva said...

Já Eyrún þetta er work in progress... við getum spjallað um það þegar þú kemur.

Berglind við krossum putta!! Í dag var 26 stiga hiti takk fyrir!! Þetta er yndislegt!