Friday, July 21, 2006

Rigning!

Hlaut að koma að því! Fyrsti dagurinn síðan við komum út (14. júní) sem rignir... Lárus upplýsti mig um það að úrkoma í Köben mældist 68 mm síðasta sumar en hefur rétt náð 1 mm í sumar. Ekki kvarta ég :) Rigningin er samt bara þægileg í 30 gráðu hita. Verst að það fylgir henni svaðalegur raki svo maður svitnar á undarlegustu stöðum allan sólahringinn...

Gestalaus vika framundan hjá okkur - kostir og gallar -

Vikan með Fjólu og co var yndislega skemmtileg. Bara gaman að "þurfa" að fara í Tívolí og Zoo. Lalli skellti sér í fallturninn og plataði svo alla hina til að fara í tryllingstækið Drekann (tæki sem ég hef farið að háskæla í). Ég sleppti öllum tækjum í þetta skiptið og skemmti mér best í dýragarðinum ;)

Takk svo mikið fyrir komuna elskurnar!! Vona að þið hafið skemmt ykkur jafn vel og við :)

Nýjasta dýrið í garðinum er Tasmanian Devil... hann vildi nú ekkert láta sjá sig. Urraði bara undir trjábol í skugganum. Í sumar er hægt að fara í Zoo alveg til 10 á kvöldin. Langar pottþétt aftur um kvöld til að reyna að sjá framan í hann. Hann er frekar lítill og loðin - algjört krútt - alveg eins og í teiknimyndunum... þangað til hann opnar munnninn sem er fullur af vígtönnum. Svo er hann er ógeðslega grimmur og étur allt sem hann kemst í og meltir allt - hann meltir hauskúpur og járndrasl og bara allt sem hann setur ofan í sig!!

Við erum orðin ansi heimavön á Íslandsbryggju enda bara næs að fara þangað í sólinni og baða sig í sjónum ef það er orðið of heitt. Á bryggjunni er hægt að spila körfubolta og þar safnast oft saman gaurar sem halda að þeir séu the hottest thing... með aðra buxnaskálmina bretta upp og í ægilegum körfuboltabúningum eða merkjafötum... talandi ensku við hvorn annan og mjög gettólegir. Eru samt í raun og veru bara frekar mikið danskir og lítið sem ekert svalir... en mjög skemmtilegir á að horfa ;)

Meira skemmtilegt sem er hægt að gera á bryggjunni... lærðum Tangó síðasta þriðjudag - bara gaman!! Ég átti samt í smá erfiðleikum með að leyfa Lalla að stjórna :/ hehehe kemur á óvart?

Tékkuðum á Amagerströnd í síðustu viku og steiktum okkur bókstaflega. Lalli nældi sér í viðurnefnið Lalli Lobster eftir daginn! Skemmtilegt að koma á strönd þar sem ekki er gert út á túrisma - bara ein ísbúð og engin að reyna að selja þér feik cucci og prada skeljar og skartgripi...

...smá innsýn inn í það sem er að gerast hjá okkur :) Good times allt the time... Vona að þið hafið það jafn gott í sólinni sem er loksins farin að skína á Íslandi.

3 comments:

Anonymous said...

þökkum kærlaega fyrir frábærar móttökur og að hafa náð að plata okkur í drekann sem reyndist mínum maga ofviða - takk fyrir að leiða okkur inn á frábæran matsölustað. Hafið ÞAÐ GOTT ÞAÐ SEM EFTIR ER AF DVÖL YKKAR.
KVEÐJA BERGLIND ELVA OG RÓBERT SINDRI

P.s. pabbi fer á lungnadeild
1. ágúst og á Grensás 14. ágúst :)

Anonymous said...

Hæ sæta gott að þið skemmtið ykkur vel og hafið það gott.

Eg vill endilega fá fleiri svona blogg

kossar og knus

Anonymous said...

Takk fyrir yndislega daga með ykkur í Köben, sól og sumri. Við komum með eitthvað af sólinni með okkur á klakann...hér hefur verið fínt veður í nokkra daga í röð...sem er by the way met í sumar ;)
Hafið það áfram gott
Fjóla