Sunday, September 22, 2013

Hera Fönn

Flestir í fjölskyldunni eru spenntastir að vita hvernig litla daman (sem í dag kallar sig skrímsla prinsessu af því að hún klæðist skrímslabol frá Kjörís) plummar sig hér í landi eldanna, hinu heita hjarta Afríku. Afdrif foreldranna virðast einhvern vegin skipta töluvert minna máli og mun sjaldnar spurt um aðlögunarhæfni okkar hvernig sem stendur á því...??? 

En það verður að segjast að við erum óskaplega stolt af litlu stelpunni okkar sem tekur hverjum degi fagnandi og spreytir sig í nýju umhverfi alls óhrædd og yfirleitt alveg pollróleg. Hún skilur mjög vel að fólk talar ekki tungumálið hennar og við reynum að æfa okkur reglulega bæði með því að lesa bækur á ensku og með því að horfa á Dóru vinkonu okkar allra (!) Hún kann núna að telja upp á 10 á ensku og segir "see you" "my name is Hera" og "thank you".

Yfirleitt er hún mjög mannblendin og heilsar þegar fólk talar við hana en stundum verður athyglin (sem nóg er af) henni ofviða og hún neitar að tala við allt fólkið sem vill klípa í kinnarnar, koma við hana og kjá framan í hana. Hera Fönn spyr margra skemmtilegra spurninga um Afríku og á oft nokkuð margar og skondnar athugasemdir á dag um það sem fyrir augu og eyru ber. 

Í morgun spurði hún til dæmis þegar hún leit út um gluggann hvort að það væri alltaf sumar í Afríku. Við útskýrðum þá árstíðirnar hér og muninn á þurrka og regntímabilinu. Hún hefur líka verið áhugasöm um flugur og pöddur hvers konar og hefur flokkað þær í tvo flokka: 1) sætar og 2) ógeðslegar. Hún er óhrædd við nánasta umhverfi og pempíuskapurinn sem var nokkur heima fyrir virðist vera búin að skolast af henni (eða kannski grafist undir skítugum fótunum sem verða ekki hreinir þó svo að farið sé í sturtu tvisvar á dag).

Hera hefur mikilvægu hlutverki að gegna í daglegri rútínu öryggisvarðanna hér í húsinu. Hún færir þeim kaffið sitt nokkrum sinnum á dag og þeir launa henni með því að leika við hana og gæta hennar þegar hún nálgast sundlaugina. Hún dundar sér ótrúlega vel hér með pabba sínum og ein síns liðs. Það verður vafalaust mun skemmtilegra fyrir hana að komast á leikskóla og vonandi er ekki langt að bíða en þangað til þá lætur hún sér ekki leiðast! 










  

6 comments:

Anonymous said...


Það er dásamlegt að lesa síðuna ykkar!

Gott að hafa svona flotta verði til að passa/leika við þetta litla gull!

Frænku knús
Valgý og co

Unknown said...

Æ hvað hún litla "forsetisráðherra" vinkona mín er dugleg! Á það nú svo sem ekki langt að sækja! :)

Ég fylgist vel með og hugsa til ykkar oft á dag :)

ást og kossar yfir hafið :*

xoxo, Vala

Anonymous said...

Þegar ég les bloggið ykkar líður mér bara eins og þið séuð persónur í e-ð af þáttunum sem ég fylgist reglulega með og sjá litlu ljósu músina með þessum dökku öryggisvörðum gerir það ennþá meira þannig... hálfgerður draumaheimur. En Hera Fönn er snillingur, það var bara vitað áður en hún fæddist enda ekki við öðru að búast :)Gott að fá update og mér finnst nú líka alveg gaman að heyra um vín og kaffi af mörkuðunum ;)
kv.Hugrún

Unknown said...

Ég verð alltaf svo spennt þegar ég sé að það er komið nýtt blogg frá ykkur og með myndum er eins og nammimoli ;)

Mér heyrist þið hafa í nógu að snúast!

Hún Hera er algjör snillingur og við söknum hennar mikið og ykkar allra :) Kári vinur hennar var einmitt að uppgötva Dóru og situr fyrir framan skjáinn og leikur með henni, telur upp á 10 á ensku bara eftir henni en taska, taska, taska hljómar ekki eins spennandi í mínum eyrum ;)

Telma said...

Yndislegt að lesa um hvernig þið öll eruð að aðlaga ykkur að nýjum aðstæðum og umhverfi.

En ég get ekki annað en brosað að lesa um Heru Fönn og hvað hún er dugleg. Hún er náttúrulega aljgör snillingur þetta barn og ein sú skemmtilegasta líka. Sakna hennar og ykkar mikið.

Risa knús til ykkar...

Hidlur M Valgardsdottir said...

elska ykkur.
kv
H