...eru kósýkvöld hjá mér og Lárusi. Á miðvikudögum er nefnilega körfuboltafrí og þá eigum við séns á að borða saman kvöldmat og jafnvel kíkja í bíó eða gera eitthvað svona sem kærustupör gera. Í kvöld fórum við í DGI byen í spa og huggulegheit. Höfðum áður prófað spa og kurbad í Frederiksberg Svommehallen þannig að við ákváðum að prófa þetta núna. Fórum í þemasánu klukkan 9 þar sem þemað var indjánar. Sánan virkar þannig að nokkurs konar sánameistari eða sá sem stjórnar sánunni hækka hitann með mismunandi vatni (appelsínu, sídrusviði og svo framvegis) þannig að sánan lyktar mjög vel og verður mjög heit. Síðan fengum við smá pásu og var hún notuð til að bera á sig papaya olíu og drekka vatn, eftir það var farið aftur í gufuna og hún hituð enn frekar. Í annari pásunni er farið í ískalt baðkar með um það bil 5° k-ldu vatni og síðan aftur í gufuna. Sánameistarinn sveiflar handklæði um gufuna og færir þannig hitann til og frá og beinir honum að hverjum og einum í gufunni. Í lok gufunnar er hún síðan hituð all verulega og eftir það hellir gufumeistarinn ísmolum yfir alla í gufunni (sem eru á þeim tímapunkti afar kærkomnir). Að lokum fá allir ávexti, djús og vatn. Frekar næs!! Við eigum örugglega eftir að fara aftur og prófa franska þemað eða finnska þemað :)
Nú sitjum við yfir miðnætur lasagnea og rauðvínsglasi... Já stundum er gott að geta sagst vera "í útlöndum" og leyft sér ýmisleg huggulegheit í miðri viku.
6 comments:
Mikið rosalega eruð þið að hafa það huggulegt...
Maður er nú hálf öfundsjúkur hérna á klakanum í slagviðrinu
Ekki prófa Finnska þemað! það er örugglega að drekka vodka og láta berja sig með hrisvendi
Knús mamma
Hahahahaha, ég er sammála mömmu þimmi!!!!
En þetta hefur nú verið voða kósý sem þið fóruð í, hljómar allavega mjög vel ;)
Það var nakið þema í sánunni á Hornströndum. Frekar næs.
Hahaha já við höfum prófað svoleiðis þema nokkrum sinnum í Þýskalandi ;) Hér er alveg obligatory að vera í sundfötum (reyndar var sánameistarinn bara með lítið handklæði um sig miðjann).
Hahah já mamma veistu í alvöru talað það er inní finnska þemanum að berja hvorn annan með hrísvöndum - við dóum úr hlátri þegar við sáum þetta fyrir okkur!!!
Sniðugt þema... afhverju er ekkert svona í sundlaugunum hérna... Lalli tekur þetta bara að sér þegar þið flytjið heim ;)
Kv,
Guðrún
Post a Comment